Kæru gestir. Verslunin var opnuð sumarið 2006 á Ísafirði. Árið 2007 voru opnaðar sjalfstæðir verslanir í Reykjavík og á Akureyri.
Það er stöðugt verið að vinna í vörulistanum á netinu. Við viljum
samt sýna ykkur megnið af því sem við höfum á boðstólum. Gjörið svo
vel.
Verslunin "Bergkristall" miðlar nýjum stíl, sem byggir meðal annars á glæsileika tveggja og hálfrar
aldar stíls.
Hvað er bergkristall?
Forngrikkir töldu að hann væri djúpfrystur ís. Í dag er þó vitað fyrir víst
að hann sé afbrigði af kvarsi, rétt eins og annar náttúrulegur kristall. Kristall getur líka
verið búinn til af mönnum. Þá er gleri og blýi blandað saman.
Hvað þýðir 24% blýkristall?
Það þýðir að búið er að blanda saman gleri og blýi þannig að blýið er
24%, sem er hámark þess blýmagns sem hafa má í kristal. Ef það er meira blý, þá verður
minni glans og tærleiki. Með þessari blöndu næst einnig hinn einkennandi hljómur í kristalinn.
Af hverju bjóðum við hágæðavöru á svo lágu verði?
Það er vegna þess að við kaupum milliliðalaust af framleiðanda. Það er líka vilji
okkar að almenningur á Íslandi geti kynnst þessum gæðavarningi.
Hollráð:
Áður en þið notið kristalinn undir mat eða drykk, er ráðlegt láta hann liggja í sólarhring í köldu
vatni, blönduðu ediki. Skolið svo með volgu vatni (notið aldrei heitt vatn á kristal) og þurrkið vandlega.
Með þessu móti losnar maður við öll hugsanleg óhreinindi sem skapast í framleiðsluferli
kristalsins.
Fínt postulín og hlutir með gyllingu endast lengur ef þeir er ekki þvegnir uppúr mjög heitu
vatni. |