Bergkristall
  Heim » Búđ » Saga postulíns   
Vöruflokkar
Finna
Upplýsingar
Saga kristals
Saga postulíns
Hvađ er bergkristall?
Hafa samband
Saga postulíns Saga postulíns


Stutt saga postulíns í hinu rússneska keisararíki.

Í byrjun XVIII aldar, á tíma hins fræga keisara Péturs mikla, hófust alvarlegar tilraunir á framleiðslu á rússnesku postulíni. Pétur, sem var stór aðáðandi postulíns, sendi njósnara sína til Meissen í Saxoníu, en þeim tókst ekki að fá leyndarmál framleiðslunnar. Eftir þetta var ákveðið að finna postulínið upp að nýju. Og það tókst árið 1744.

Smám saman nálguðust gæðin það besta sem til var – kínverskt postulín.

Fyrstu postulínsverkin voru litlar styttur, skrautdiskar og gjafir handa hástéttinni. Postulínið var á þeim tímanum nefnt “hvítt gull”.

Við lok XVIII aldarinnar lét Katrín mikla gera fyrir höllina nokkur stórkostleg sett sem töldu meira en þúsund stykki hvert. Verk úr postulíni vor metin jafn hátt og verk úr gulli. Þau voru varðveitt ásamt hinum dýrustu skartgripum og listaverkum.

Árið1832 byggdi Kuznesov kaupmaður í Dúlevo (90 km frá Moskvu) postulínsverksmiðju, þar sem vinna var tæknilega mjög vel skipulögð. Frægir listamenn tóku þátt í því að skapa myndir og munstur fyrir vörurnar, sem þá þegar stóðust samkeppni á alþjóðlegum markaði.

Og þá var hætt að selja eingöngu keisaranum fínar vörur, heldur buðust þær millistéttinni einnig. Form og munstur á mörgum postulínsvörum eru óbreytt síðan þá: bjartir litir og létt form fyrir þá sem vilja fjölbreytileika en ströng form og hreinir litir fyrir aðdáendur klassíska stílsins.

 Áfram